27.12.2006 20:53

30 vikur og 3 dagar

Jæja ég er loksins búin að skella inn nokkrum myndum :) endilega skoðið þær....

Var í mæðraskoðun í morgun og allt er í stakasta lagi. Litli prinsinn stækkar alveg rétt eftir kúrfunni, hjartsláttuinn var hraustur og góður og ljósmóðirin var ekkert smá ánægð með okkur bæði :) Þessi meðganga er búin að ganga svo rosalega vel og ég segi bara 7, 9, 13, og vona að þetta haldist svona gott næstu 10 vikurnar.

Jólin eru búin að vera æðisleg, erum bara búin að slappa af, boðra og hafa það rosa gott. 3 jólaboð á 3 dögum, gerist ekki betra en það...hehe;)

En jæja þetta er gott í bili, endilega skoðið myndirnar og haldið áfram að vera svona dugleg að kommenta, alltaf jafn gaman að skoða það

Ásdís bumbulína

Eldra efni

Um mig

Faðir:

Kári Emilsson

Móðir:

Ásdís Jóna Marteinsdóttir

Um:

Ég heiti Alexander Óli Kárason og ég fæddist 16.febrúar 2007. Ég var 13 merkur og 49 cm. Ég kom svoldið fyrr en ég átti að gera en það var sko í góðu lagi því það voru allir orðnir svo spenntir að fá mig. Ég á eina stóra systir sem heitir Lísa Katrín, hún er alveg æðisleg. Pabbi minn heitir Kári Emilsson og er úr Mosó, Mamma heitir Ásdís Jóna og er úr Árbænum.

Alexander verður 4 ára

atburður liðinn í

14 ár

4 mánuði

13 daga

Tenglar

Flettingar í dag: 338
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 58748
Samtals gestir: 11973
Tölur uppfærðar: 1.7.2025 09:49:44